stutt blogg

Þó það séu um það bil þrjár vikur liðnar frá síðasta bloggi, er ekki frá mörgu að segja, bara saZorba kominn í peysuma sagan aftur og aftur. Ég er bara að bíða. Ég sé núna hvað ég er venjulega alltaf eitthvað út um allt og geri fullt af hlutum alla daga allan daginn (þó að venjulegu finnist mér ég ekki gera neitt). Það er talsverð togstreita að geta allt í einu ekki gert allt það sem maður er vanur vegna svona orkuleysis. Svo kemur samviskan líka inn og segir að ég ætti nú að geta gert meira, þó hausinn og líkaminn séu ekki sama sinnis. En hvað um það. Fyrir helgina ákvað ég að segja mig úr einu námskeiði í skólanum því það er deginum ljósara að ég ræð ekki við að vera í fullu námi akkúrat núna. Námskeiðin sem verður fyrir barðinu er bókmenntasagan sem mér finnst nú annars skemmtileg. Það er bara miklu meiri lestur við hana en þreyttur haus minn ræður við. Á morgun ætla ég að ganga í það að segja mig úr námskeiðinu. Samviskusemin þarf bara að bíða aðeins. Ég verð bara últra dugleg í bókmenntasögunni eftir ár. LoL

Hér til hliðar má sjá í skottið á Zorba þar sem hann var kominn inn í peysu í dag og ég mátti til með að smella af.

Annars hef ég síðustu vikur verið svolítið að leika mér meira með myndavélina mína og púslaði loksins saman vídeói sem ég tók held ég bara á annan í Jólum eða alla veganna á milli jóla og nýárs en hafði ekki klippt það til. Ég gerði það um daginn og hér fyrir neðan er myndbandið. Ég er líka búin að gera nokkur fleiri vídeó þar sem ég tala ensku svo vinir í útlöndum geti líka skilið, en þeim ætla ég að hlaða upp einu af öðru á næstunni. Það hefur reyndar líka hvarflað að mér að prófa að gera svona vídeóblogg, en mér finnst dálítið óþægilegt að tala við sjálfa mig í myndavél, þó það gangi betur núna, en það gerði í vídeóinu hér fyrir neðan sem fyrsta myndbandið sem ég gerði!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úlfhildur

höfundur

Úlfhildur Flosadóttir
Úlfhildur Flosadóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • nóvember 022
  • nóvember
  • flutningar 041
  • flutningar 035
  • flutningar 033

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband