tilkynning!

Örvæntið ekki, Íma og aðrir sem bíða spenntir, færeyska bloggið kemur á morgun föstudaginn 3. ágúst á milli klukkan 4 og 6 að færeyskum tíma. Ég er bara búin að vera heima í dag, vegna sárra túrverkja, gat ekki hreyft legg né lið í morgun, og ég er búin að vinna smá í færeysku bloggi. Nýja íslensk-færeyska orðabókin, er frekar gamaldags, hún er góð en gamaldags. Höfundurinn skrifar t.d. verslun ennþá með z. Mér finnst að orðabók sem gefin er út á þessari öld eigi ekki að vera með z-um. Síðan eru líka hin og þessi skrítin gömul íslensk orð sem ég man ekki eftir að hafa nokkurntíma heyrt neinn mann nota. Bókin segir að orðið "klósett" sé vont eða ljótt mál. Maður heyrir fólk sjaldan tala um "vatnssalerni" eða "salerni"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergþóra Jónsdóttir

Sjálfrennireið er auðvitað besta orðið yfir bíl, og fer mjög vel í munni að tala um þriggja sjálfrennireiða árekstur, og sjúkrasjálfrenireið og leigusjálfrennireið.  Ekki vera pirruð á bullinu, málið er rétt eins og hver og einn talar það þá stundina.

knús,

mamms, bíð spennt eftir því færeyska

Bergþóra Jónsdóttir, 2.8.2007 kl. 20:05

2 identicon

Sæl Úlfhildur! Ég rakst á bloggið þitt fyrir tilviljun og sá að þú hafðir verið í lýðháskólanum í Snoghoj. Ég er að fara þangað eftir 2 vikur og var að spá hvort þú gætir nokkuð gefið mér smá upplýsingar um dvölina þína þar :)
Kveðja,
Björg Vigfúsdóttir
bjorgv_85@hotmail.com

björg (IP-tala skráð) 2.8.2007 kl. 21:30

3 identicon

Jibbí, ég bíð spennt : ) Ég veit að Beggu finnst orðið sætabrauð líka skemmtilegt. Hvaða orð önnur voru það Begga sem mér fannst lummó árið 1983? Æ hvað maður gat nú verið mikill unglingur.

Í

ímsí (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 03:07

4 Smámynd: Úlfhildur Flosadóttir

Ég meina bara hvenær notar maður orð eins og himpigimpi?

Úlfhildur Flosadóttir, 3.8.2007 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úlfhildur

höfundur

Úlfhildur Flosadóttir
Úlfhildur Flosadóttir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • nóvember 022
  • nóvember
  • flutningar 041
  • flutningar 035
  • flutningar 033

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband